Tröll
Íslenskt tröll eru stórvaxnar verur sem búa í hellum og gljúfrum íslenskra fjalla og eru mörg þeirra grimm og ásælin í mannakjöt líkt og Grýla. Mörg tröll þola ekki dagsljósið og eru þau kölluð náttröll. Ef dagsljóðsið nær að skína á þau þá verða þau að steini. Víða um má sjá steinrunnin tröll sem náðu ekki heim í hellinn sinn í tæka tíð fyrir sólarupprás.
Til eru þó líka góð tröll og þá einkum tröllskessur sem búa oft og tíðum í sátt og samlyndi við íslenska bændur sé þeim virðing sýnd og tillitssemi. Af sögum um slíkt samneyti er trúlega sprottið máltækið "tröll eru í tryggðum best". Illa er þó tröllum við kristni og kirkjur og hopa jafnan undan ef kirkjuklukkur gjalla.
Tröllasíður
Hér fyrir neðan má finna tengla á síður sem tengjast tröllum að einhverju leyti.
|